Öryggis- heilsu- og umhverfisstefna VJI
Öryggisstefna VJI
-
VJI leggur til allan öryggisbúnað er starfsfólk þarfnast vegna vinnu sinnar.
-
VJI leitast við að miðla upplýsingum til starfsfólks um hættur er það kann að verða fyrir í starfi.
-
VJI aflar upplýsinga um og skráir óhöpp sem starfsfólk verður fyrir í starfi með það að sjónarmiði að fækka óhöppum.
-
VJI leggur áherslu á fræðslu starfsmanna um öryggismál og forvarnir.
Heilsustefna VJI
-
VJI leggur áherslu á að vera fjölskylduvænt fyrirtæki með góðan starfsanda, jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu starfsmanna án tillits til kynferðis, uppruna eða trúar.
-
VJI leggur áherslu á heilbrigt vinnuumhverfi og góðan aðbúnað að teknu tilliti til vinnuverndar og ánægju í starfi.
-
VJI styrkir starfsfólk til heilsuræktar og hvetur það með góðum aðbúnaði og sveigjanleika í starfi.
Umhverfisstefna VJI
-
VJI leggur áherslu á að veita lausnir sem stuðla að góðri nýtingu auðlinda, minni úrgangi og aukinni endurvinnslu.
-
VJI leitast við að benda viðskiptavinum á hagkvæmar og vistvænar lausnir.
-
VJI stefnir að því að draga úr umhverfisáhrifum fyrirtækisins með því að taka tillit til umhverfisþátta við val á aðföngum og draga úr sóun þeirra.
-
VJI leitast við að stuðla að bættri umhverfisvitund starfsfólks og stendur fyrir fræðslu starfsmanna um umhverfismál.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að stefnunni sé framfylgt og henni viðhaldið.