top of page

Samgöngustefna VJI

 

VJI leitast við að stuðla að bættri umhverfisvitund starfsfólks og stendur fyrir fræðslu starfsmanna um umhverfismál.

 

Stefna VJI er að vinna að því að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfið með því að stuðla af því að starfsfólk noti vistvænan og hagkvæman ferðamáta. Slíkur ferðamáti leiðir til minni mengunar og lægri stofnkostnaðar í samgöngumannvirkjum og bílastæðum.

 

VJI vill leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfi og heilsu starfsfólks með því að hvetja fólk til að nýta almenningssamgöngur, ganga eða hjóla til og frá vinnu.

 

VJI gerir samgöngusamning við þá starfsmenn sem nota vistvænan samgöngumáta. Þeir starfsmenn sem gera samgöngusamning við VJI fá endurgreiddan útlagðan kostnað. Hámarksupphæð endurgreiðslu er ákveðin af stjórn VJI og er kynnt starfsfólki.

 

Til að auðvelda starfsfólki að nýta sér vistvænan ferðamáta til og frá vinnu er fyrirtækisbifreið til staðar fyrir vinnutengdar ferðir.

 

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að stefnunni sé framfylgt og henni viðhaldið.

Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf.

  ·  Síðumúli 1, 108 Reykjavík  · 

Sími: (+354) 560 5400  ·  vji(hjá)vji.is

Vefhönnun: Radarstöðin ehf.

© 2014 Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf

bottom of page