top of page
VJI tekur að sér ásamt samtarfsaðilum fullnaðarhönnun á meðferðarkjarna á Landspítalalóð.
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar (VJI) hefur ásamt samstarfsaðilum sínum í CORPUS3 hópnum undirritað samkomulag um hönnun nýs meðferðarkjarna á Landspítalalóð við Hringbraut. Í CORPUS3 eru auk VJI, Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar og VSÓ ráðgjöf. VJI mun sjá um verkefnastjórnun og alla raflagnahönnun. Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar hefur unnið við raflagnahönnun allra bygginga á Landspítalalóðinni í yfir 40 ár og mun sú reynsla nýtast vel fyrir komandi verkefni.
Áætluð heildarstærð meðferðarkjarnans er um 58.500 m². Byggingin mun verða á 6 hæðum neðan götu, 5 hæðum ofan götu auk kjallara. Meðferðarkjarninn mun tengjast öðrum byggingum á Landspítalalóðinni.
Frétt MBL um málið má finna hér.
Meðferðarkjarni á Landspítalalóð.

bottom of page