Verkfræðistofurnar VSI og VJI sameinast.
Verkfræðistofurnar VSI, öryggishönnun og ráðgjöf og VJI, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, hafa sameinast í nýtt þekkingarfyrirtæki sem mun ásamt almennri verkfræðiþjónustu bjóða viðskiptavinum sínum víðtæka rekstrarráðgjöf ásamt ráðgjöf á sviði öryggismála og vinnuverndar.
Allir starfsmenn fyrirtækjanna, 34 frá VJI og 9 frá VSI munu vinna hjá sameinaða fyrirtækinu og allir samningar og skuldbindingar við viðskiptavini verða með óbreyttu sniði. Núverandi starfsstöðvar VJI og VSI verða nýttar áfram þar til hentugt húsnæði finnst fyrir starfsemi fyrirtækisins.
Magnús Kristbergsson, framkvæmdastjóri VJI, verður framkvæmdastjóri sameinaða fyrirtækisins og Jakob Kristjánsson sem var framkvæmdastjóri VSI verður sviðsstjóri Öryggissviðs.
Leiðir þessara rótgrónu verkfræðistofa hafa margoft legið saman við flókin hönnunarverkefni og margvíslegar verkfræðilegar úrlausnir, enda hafa megin áherslur þeirra verið á ólíkum sviðum verkfræðinnar.
VJI hefur frá stofnun fyrirtækisins 1960 sérhæft sig í verkfræði- og rekstrarráðgjöf auk almennrar verkefnastjórnunar. VSI var stofnsett árið 1987 til að svara kröfum markaðarins um faglega og óháða ráðgjöf í öryggismálum í víðasta skilningi þess orðs.
Markmiðið með sameiningu fyrirtækjanna er að veita viðskiptavinum þeirra aðgang að breiðari þekkingu og allri almennri verkfræðiþjónustu á einum stað. Um leið verður haldið í einkenni minni fyrirtækja sem byggja á einföldum boðskiptum, stuttum svartíma og persónulegri þjónustu.
Efnt hefur verið samkeppni um nafn á hinu sameinaða fyrirtæki meðal starfsmanna þess.
Nánari upplýsingar veita:
Magnús Kristbergsson framkvæmdastjóri
Sími 897 7319
Jakob Kristjánsson, sviðsstjóri Öryggissviðs
Sími 892 5118
